Ísland með hálfan milljarð í þróun bóluefnis:  Í bandalagi með Bill Gates og fleirum


Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tilkynnti um framlag Íslands til sérstaks aðgerðabandalags fjölmargra ríkja, fyrirtækja og stofnana á ráðstefnu bólusetningarbandalagsins Gavi í dag.

Aðgerðabandalagið sem miðar að því að hraða þróun, framleiðslu og dreifingu á bóluefni við COVID-19 var stofnað fyrir rúmum mánuði og er markmið þess jafnframt að stuðla að sýnatökum og meðferðarúrræðum fyrir alla, óháð búsetu og efnahag. Framlag Íslands skiptist þannig að 250 milljónir króna fara til bólusetningarbandalagsins Gavi og sama upphæð til CEPI (e; Coalition for Epidemic Preparedness Innovation) sem er samstarfsvettvangur fyrirtækja og opinberra aðila um viðbúnað gegn farsóttum.

Fjölmargar alþjóðastofnanir og sjóðir á sviði heilbrigðismála, auk Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar standa að aðgerðabandalaginu og hefur fjöldi ríkja tilkynnt um framlög til mismunandi stofnana undir hatti þess. Þannig hafa Norðmenn lofað milljarði Bandaríkjadala og Bandaríkin, Bretland, Kanada og Þýskaland lofað hundruðum milljóna Bandaríkjadala, að því er segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.


Boris Johnson boðaði til ráðstefnunnar

  • Auk forsætisráðherra Íslands ávarpaði fjöldi þjóðarleiðtoga fjarráðstefnuna sem boðað var til af Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands. Bill Gates, stofnandi Microsoft, var jafnframt einn ræðumanna en stofnun Bill og Melindu Gates, hefur heitið 250 milljónum Bandaríkjadala til baráttunnar gegn COVID-19.
  • Markmið Gavi ráðstefnunnar í dag var að safna samtals 7,4 milljörðum Bandaríkjadala og náðist það og gott betur því alls söfnuðust 8.8 milljarðar.