Mannréttindasamtökin Mín Leið – Mitt val berjast gegn valdatöku einkahlutafélagsins WHO á fullveldi Íslands í heilbrigðismálum
17.5.2022
Mannréttindasamtökin MÍN LEIÐ – MITT VAL berjast af fullum krafti gegn valdatöku einkahlutafélagsins WHO á fullveldi Íslands í heilbrigðismálum, og krefjast svara.
Forseti Íslands og ráðamenn fá 7 daga til að svara neðangreindu bréfi sem sent var í morgun mánudaginn 16.05.22 með stefnuvottum frá Héraðsdómi, og samhljóða fréttatilkynning verður send öllum helstu fjölmiðlum landsins.
Mannréttindasamtökin MÍN LEIÐ – MITT VAL hafa í dag 16.O5.22, sent eftirfarandi aðilum það bréf sem hér fylgir með.
Bréfið er sent á heimilisfang þeirra með stefnuvottum, en umræddir aðilar eru:
- Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands,
- Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands,
- Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra,
- Sigurður Ingi Jóhannsson innanríkisráðherra
- Þórdís Kolbrún Reykdal Gylfadóttur utanríkisráðherra
BRÉFIÐ
Ágæti viðtakandi
Þér er hér með bent á að allar aðgerðir til að stuðla að stofnun, breytingum, framlagningu og/eða samþykktum samninga eða sáttmála, sem reyna að sniðganga, grafa undan og/eða skaða fullveldi Íslenska lýðveldisins, eins og sett er fram í stjórnarskránni, og/eða framselja þessa heimild, að öllu leyti eða að hluta, til erlendra ríkja eða annarra aðila, eru brot á stjórnarskrá Íslands.
Þátttaka í slíkum aðgerðum er talin landráð og einstaklingar sem fundnir eru sekir um brot geta átt yfir höfði sér sektir eða fangelsi í samræmi við íslensk lög. Þú ert eindregið hvött/hvattur til að stöðva allar frekari tilraunir sem passa við þessa lýsingu með tilliti til breytinga á Alþjóða heilbrigðissáttmálanum skv. í 12. kafla, liðum 2., 3. og 5. sem lagðar eru til og/eða til skoðunar á 75. Alþjóðaþingi WHO í Genf dagana 22.-29. maí 2022.
Ennfremur er óskað eftir nákvæmum upplýsingum um hverjir þeir aðilar eru, sem hafa umboð frá forseta Íslands, samkvæmt 21.gr. 1.mgr. Stjórnarskrár lýðveldisins til að fara fyrir hönd Íslenska lýðveldisins á fund Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar dagana 22.-29. maí í Genf í Sviss, þar sem fulltrúar frá 192 þjóðum munu mæta.
Svar óskast innan 7 daga frá dagsetningu þessa bréfs.
Með kveðju
f.h. félaga í Mannréttindasamtökunum
MÍN LEIÐ — MITT VAL
Sigurlaug Þ. Ragnarsdóttir, formaður
VIÐAUKI I:
Bendum jafnframt á eftirfarandi greinar í almennum hegningarlögum:
X. kafli. Landráð.
86. gr.
Hver, sem sekur gerist um verknað, sem miðar að því, að reynt verði með ofbeldi, hótun um ofbeldi, annarri nauðung eða svikum að ráða íslenska ríkið eða hluta þess undir erlend yfirráð, eða að ráða annars einhvern hluta ríkisins undan forræði þess, skal sæta fangelsi ekki skemur en 4 ár eða ævilangt.
XI kafli. Brot gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum þess.
98. gr.
Veki maður eða stýri uppreisn í þeim tilgangi að breyta stjórnskipun ríkisins, þá varðar það fangelsi, ekki skemur en 3 ár eða ævilangt.
Hver, sem tekur þátt í þess konar uppreisn, svo og hver sá, sem sekur gerist um verknað, er miðar að því að breyta stjórnskipuninni á ólögmætan hátt, skal sæta fangelsi allt að 8 árum.
Katrín Jakobdóttir móttók bréfið sem að stefnuvottur færði henni fyrir okkar hönd. Hin voru öll á WHO ráðstefunni og undirrituðu ekki WHO samninginn eins og til stóð.
Við náðum að stöðva það ferli.
Frekari heimildir:
- Fljótum við sofandi að feigðarósi?
- WHO hefur áform um áframhaldandi faraldra smitsjúkdóma næstu 10 ár!
- Sex dagar í að WHO fái gríðarleg völd yfir heilbrigðismálum 194 landa – Málið hefur ekki enn verið rætt á þingi
- Barist gegn valdatöku WHO á fullveldi Bandaríkjanna í heilbrigðismálum
- Öldungadeildarþingmaðurinn Rick Scott varar við því, að ríkisstjórn Bidens veiti Kína og WHO þjóðarfullveldi yfir heilbrigðismálum Bandaríkjanna
- AÐVÖRUN! Stefnt að afnámi þjóðlegs fullveldis í heilbrigðismálum á komandi Alþjóðaheilbrigðisþingi WHO 22. – 28. maí
8.5.2022 | 14:49
Stærsta lygi heimssögunnar er þessi svokallaði Covid “heimsfaraldur”, það var í raun aldrei neinn alvöru heimsfaraldur í gangi.
Gögn hafa verið fölsuð í stórum stíl og hömlurnar sem voru settar á mannkynið áttu aldrei neinn rétt á sér, voru í raun gjörsamlega tilhæfulausar, rétt eins og þessi svokölluðu “bóluefni” sem búið er að sprauta í stóran hluta mannkyns.
Að rústa 190 fullvalda ríkjum félagslega, pólitískt og efnahagslega getur ekki verið “lausn” á baráttu gegn vírusnum. En það var hin þvingaða “lausn” sem var innleidd í nokkrum áföngum alveg frá upphafi “heimsfaraldursins” í janúar 2020. Þetta var eyðilegging á lífum fólks og borgaralegum samfélögum.
Fölsuð vísindi voru notuð til að styðja við þessa skelfilegu áætlun, og lygunum var haldið uppi með gríðarlegum einhliða áróðursherferðum í fjölmiðlum um heim allan.
Hræðsluáróðurinn var linnulaus nánast allan sólarhringinn og fólk stöðugt minnt á “ógnina” í fjölmiðlunum.
Söguleg lokun (lockdown) þann 11. mars 2020 olli skelfilegum efnahagslegum og félagslegum glundroða um heim allan. Þetta var í raun efnahagslegt stríð, stríð gegn mannkyninu.
Þessi djöfullega áætlun hefur grafið undan fullveldi þjóðríkja, stuðlað að öldu gjaldþrota og gert fólk fátækt um heim allan og leitt til vaxandi skuldasöfnunar.
Sterkir innviðir alþjóðlegs kapítalisma, auðmagn, ásamt njósna- og herbúnaði eru drifkrafturinn.
Með því að nota háþróaða stafræna tækni og fjarskiptatækni, eru lokanirnar og skemmdarverkin á heimshagkerfinu fordæmalaus í heimssögunni.
Blekkingarnar
Fólk hefur verið sent í þessi PCR próf í milljarðavís, þrátt fyrir að vitað sé að þau voru aldrei hönnuð til að greina hvort einhver sé veikur eða ekki.
“Vísindin” hafa breyst nánast dag frá degi, og undir því yfirskyni hafa verið réttlættar meiri hömlur á okkur.
Nærtækt dæmi er þegar sóttvarnalæknir okkar vísar í einhver “ný vísindi” eða “nýjar rannsóknir” án þess að sýna fram á nokkur gögn, og segist gjarnan vera að fylgja tilmælum WHO, sem vill svo til að er að sækjast eftir því að ná fullkomnum yfirráðum yfir heilbrigðismálum heimsins núna síðar í maí!
Sjá umfjöllun mína um það hér í færslunni Fljótum við sofandi að feigðarósi?
Heiðarlegir vísindamenn og læknar hafa verið smánaðir, bannaðir og útskúfaðir fyrir að “dirfast” að tala á móti þessari einu leyfðu umræðu um “bóluefnin” og “faraldurinn”, á meðan menn eins og Dr. Fauci fá að eiga senuna alveg skuldlaust, rétt eins og Bill Gates sem er ekki læknir né hvað þá sérfræðingur í heimsfaröldrum.
Hér er eitt dæmi um Dr. Fauci og hér er annað.
Faraldurinn er notaður til að koma á alræði í heiminum!
Í þessu einstaka 30 mínútna vídeói er dreginn fram hluti af atburðarrásinni mánuðina og árin fyrir “heimsfaraldurinn”, þar á meðal klippur með sláandi ummælum ýmissa aðila. Horfið á það allt til enda.
Nokkrir punktar úr vídeóinu:
- Árið 2017 fullyrti Fauci að upp kæmi óvæntur faraldur á næstu árum, og ekki bara hann, heldur líka hjónin Bill og Melinda Gates, forstjóri WHO, og fleiri.
- Karl Bretaprins sem er virkur þátttakandi í áætlunum The World Economic Forum hótar fleiri faröldrum og hörmungum nema heimsbyggðin gangist undir endurræsinguna miklu, eða The Great Reset.
- Hollenskur veirufræðingur hjá WHO segir þar vera 10 ára áætlun um áframhaldandi faraldra smitsjúkdóma.
- Árið 2010 gaf Rockefeller stofnunin út “Scenarios for the future”, eða einhvers konar atburðarás fyrir framtíðina, þar sem fjallað var um faraldur kórónuveiru, sem endaði með alheimseinræði, Operation Lock Step, “A world of tighter top-down government control and more authoritarian leadership, with limited innovation and growing citizen pushback”.
- Á árunum 2017 – 2018 var hundruðum milljóna Covid prófa dreift um allan heim – löngu fyrir “heimsfaraldurinn”.
- Mánuðum áður en “heimsfaraldurinn” skall á, var Fauci þegar tilbúinn með “bóluefni”.
- Mánuðum fyrir Covid ræddi pallborð nauðsyn alþjóðlegs truflandi atburðar til að gera heiminn reiðubúinn að samþykkja tilraunabóluefni.
- Árið 2017 gaf John Hopkins háskólinn út framúrstefnulega framtíðarsýn um faraldur kórónuveiru.
- Fjórum mánuðum fyrir Covid stóð Bill Gates fyrir Event 201, sem var æfing í viðbrögðum við kórónuveirufaraldri.
- Fjórum mánuðum fyrir Covid ræddu Fauci og starfsmenn HHS um nauðsyn alheimsatburðar til að sprengja “kerfið” upp til þess að gera almenning viljugan til að þiggja mRNA tilraunabóluefni.
- Fimm mánuðum fyrir Covid var gefin út handbók í Ástralíu um kórónuveirufaraldur.
- Fimm mánuðum fyrir Covid fyrirskipaði WHO öllum ríkisstjórnum að undirbúa yfirvofandi heimsfaraldur kórónuveiru.
- Sex mánuðum fyrir Covid kallaði The Global Vaccination Summit eftir öflugum eftirlitskerfum til að tryggja áframhaldandi bólusetningar á öllu mannkyninu.
- Einu ári fyrir Covid þjálfaði evrópskur veirusérfræðingur alþjóðlega leiðtoga í því hvernig ætti að undirbúa almenning fyrir heimsfaraldur, þar sem hann kenndi þeim m.a. hvernig ætti að skapa ótta með fölsuðum dánartölum til að fá fólk til að bólusetja sig.
- Hvernig fólk er búið undir framtíðar atburði í gegnum afþreyingarefni til að fá það til að meðtaka það sem sé um það bil að gerast. Má þar nefna sjónvarpsþætti og bíómyndir sem lýsa nákvæmlega því sem er að gerast í dag.
- Þúsundir lækna og vísindamanna um allan heim segja að þessi faraldur hafi verið planaður í þeim tilgangi að ná valdi yfir heiminum og fækka mannkyninu.
Það er ekki lengur hægt að kalla allt þetta samsæriskenningar, sannanirnar blasa við þeim sem nenna að leita sér upplýsinga og staðreynda – hjá öllum öðrum en þeim sem hafa viðhaft og stutt þennan skelfilega hræðslu- og bólusetningaráróður í rúm tvö ár núna.
Hér á landi mætti nefna þríeykið með Þórólf fremstan í fararbroddi, Kára Stefánsson, Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur, og fleiri, með dyggum stuðningi flestra fjölmiðla. Þetta fólk eru beinir þátttakendur í þessari samræmdu alþjóðlegu aðför gegn þjóð sinni, og í raun heimsbyggðinni allri.
https://kristinthormar.blog.is/blog/kristinthormar/entry/2279029/
https://kristinthormar.blog.is/blog/kristinthormar
https://kristinthormar.blog.is/blog/kristinthormar/entry/2278523/#comment3781008
Um höfund
- ✞༺(((( Ⓒilla ℜągnąℜṧ )))༻♚༺ BA Classical Art Historian || MA Culture & Media || Tourism & Sales Management || Web Design || Photo & Videographer for Tourism Magasins ༻
Síðustu færslur
- Óflokkað30. maí, 2024GLÚMUR SEGIR ARNAR ÞÓR VERA MEÐ VITLAUSAR SKOÐANIR
- GLÆPUR GEGN MANNKYNI9. janúar, 2024Janet Ossebaard, höfundur heimildarmyndarinnar “The fall of the Cabal” fannst látin á jóladag
- Sameinuðu Þjóðirnar28. desember, 2023Lestrarefni Menntamálastofnunar: Varúð hér býr vampíra – auðlesin sögubók á léttu máli og bókinni fylgir verkefnahefti sem hægt er að vinna samhliða lestri.
- Heimsmarkmiðin27. desember, 2023Hin raunverulega merking og innhald 17 Heimsmarkmiða (UN) Sameinuðu þjóðanna